Q3378254

Lighthouse in Iceland

Hornbjargsviti er viti sem stendur í Látravík, sem er næsta vík fyrir austan Hornvík. Fyrr á öldum þótti Látravík ekki álitlegur kostur til ábúðar, og var hún ekki byggð fyrr en 1872 þegar Jóhann Halldórsson bóndi og refakytta settist þar að. Jóhann er talinn síðasti landnámsmaðurinn, þar sem Látravík er síðasta jörðin sem mæld var úr óskiftum almenningi hér á Íslandi. Í Látravík var svo búið allt fram til 1909, en þá fór jörðin í eyði.

From Hornbjargsviti on Wikipedia, CC BY-SA.

Coordinates:
66.41°N, 22.38°W

Explore this and over 1.8 million other heritage records on Fornland, the free map of cultural heritage across northern and central Europe.