Menningarlandslag í Þjórsárdal

Friðlýst minjasvæði in Iceland

Friðlýsing Þjórsárdals er brautryðjendastarf í minjavernd á Íslandi. Hingað til hefur verið einblínt á að friðlýsa staka minjastaði – og reyndar gjarnan stakar tóftir – en á síðustu misserum hefur verið tilhneiging á Vesturlöndum til að horfa á efnismenningu fortíðar í samhengi við nærumhverfið jafnt sem aðra minjastaði. Sambúð lands og lýðs hefur hlotið meiri athygli því vissulega mótar maðurinn landið en því er líka öfugt farið, að landið móti athafnir fólksins. Með friðlýsingu Þjórsárdals er verið að stíga stórt skref í þá átt að vernda menningarlandslag – manninn og landið sem hann lifði og hrærðist í. Bóndabýli á Íslandi í aldanna rás gat samanstaðið, með litlum breytingum, af bæ, bæjarlæk eða brunni, útihúsum, smiðju, túngarði, mógröfum, kolagröfum, stekk, kvíum, beitarhúsum, seli, kumlateig, kirkjugörðum og álagablettum. Leiðir urðu til innan hverrar jarðar og leiðir voru varðaðar á milli bæja og landshluta. Fé var rekið á afrétt, fólk fór á grasafjall, tíndi ber, veiddi gæsir og álftir í sárum inni á öræfum, safnaði dúni úr hreiðrum og sló engjar og hvern lófastóran blett á heimalandinu. Gert var til kola og járn unnið úr mýrarrauða. Allt er þetta vitnisburður um búskaparhætti í Þjórsárdal á fyrri öldum og fá fornleifarnar þannig meira vægi sem hluti heildar en sem stakar minjar slitnar úr samhengi við umhverfi sitt. Af þessu má sjá að menningarlandslag er meira en stak

Type:
Friðlýst minjasvæði

Coordinates:
64.07°N, 20.05°W

Explore this and over 1.8 million other heritage records on Fornland, the free map of cultural heritage across northern and central Europe.