Hvanneyri - gamla bæjartorfan
Friðlýst minjasvæði in Iceland
Með vísan til 3. mgr. 18. gr. laga nr. 80/2012 um menningarminjar ákvað forsætisráðherra 11. júlí 2015 að tillögu Minjastofnunar Íslands að friðlýsa gömlu bæjartorfuna á Hvanneyri í heild sinni innan afmarkaðs svæðis, þar með talið neðangreind hús, ásýnd staðarins, mannvistarleifar, garðar, ferjustaður við Hvítá og fyrri tíðar aðkomuleiðir heim að staðnum. Ennfremur tekur friðlýsingin til friðaðra minningarmarka í kirkjugarði, jarðræktarminja, varnar- og áveitugarða (garðlaga) og skurða sem tengdust engjarækt á bökkum Hvítár. Friðlýstu húsin eru: Hvanneyrarkirkja var byggð árið 1905 eftir teikningu Rögnvaldar Ólafssonar arkitekts. Hún var friðuð vegna aldurs árið 1990 skv. þjóðminjalögum nr. 88/1989. Sjá nánar. Skólahúsiðvar byggt 1910. Það þykir vel útfært verk Rögnvaldar Ólafssonar. Skólastjórahúsið, sem byggt var 1920, er verk Guðjóns Samúelssonar. Skemmanvar byggð árið 1896 og er elsta hús staðarins. Leikfimihúsiðer teiknað af Einari Erlendssyni húsameistara árið 1911 og byggt sama ár. Húsið er enn í notkun og eitt af þrem elstu leikfimishúsum landsins. Hjartarfjóssem steinhlaðið var á árunum 1900 til 1901 og er með fyrstu steinhlöðnu útihúsum á landinu. Síðar var það hækkað með steinsteypu. Halldórsfjós og hlaðabyggð á árunum 1928 til 1929 eftir teikningum Guðjóns Samúelssonar. Það var byggt fyrir 80 gripi og þótti stórt og vandað á sínum tíma og markaði breytingar í búska
- Type:
- Friðlýst minjasvæði
- Coordinates:
- 64.57°N, 21.77°W
Explore this and over 1.8 million other heritage records on Fornland, the free map of cultural heritage across northern and central Europe.