Menningarlandslag heimatúns Hofstaða í Mývatnssveit

Friðlýst minjasvæði in Iceland

Með vísan til 3. mgr. 18. gr. laga nr. 80/2012 um menningarminjar hefur umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra ákveðið að fenginni tillögu Minjastofnunar Íslands að friðlýsa menningarlandslag heimatúns Hofstaða í Mývatnssveit (landnr. 153577, fastanr. 216-3046). Að Hofstöðum eru m.a. minjar stórbýlis og trúarmiðstöðvar frá 10. öld, þ.m.t. stór skáli, merki um heiðin blót, kirkja og kirkjugarður. Skálinn er með stærstu víkingaaldarbyggingum sem grafnar hafa verið upp á Íslandi. Friðlýsingin tekur til menningarlandslags heimatúns Hofstaða og sameinar sem minjaheild menn- ingarlandslag, sem varðveitir í senn fornleifar sem friðlýstar voru á árinu 1930, þ.e. Hofrúst og Hof- klett, og aðrar aldursfriðaðar fornleifar í umhverfi sínu. Ef áður óþekktar minjar finnast innan hins friðlýsta svæðis falla þær undir skilmála friðlýsingar þessarar. Íbúðarhús og útihús á jörðinni (merking 03 0101, 04 0101, 05 0101, 06 0101, 08 0101 og 09 0101) eru undanskilin friðlýsingunni. Gert er ráð fyrir 100 metra friðhelgu svæði frá útmörkum hins friðlýsta svæðis, sbr. ákvæði 22. gr. minjalaga.

Type:
Friðlýst minjasvæði

Coordinates:
65.61°N, 17.16°W

Explore this and over 1.8 million other heritage records on Fornland, the free map of cultural heritage across northern and central Europe.