Menningar- og búsetulandslag Laugarnestanga í Reykjavík
Friðlýst minjasvæði in Iceland
Með vísan til 3. mgr. 18. gr. laga nr. 80/2012 um menningarminjar hefur umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra ákveðið að fenginni tillögu Minjastofnunar Íslands að friðlýsa menningar- og búsetulandslag Laugarnestanga í Reykjavík (L176047, L176048, L176049, L176050, L216765 og L218177). Friðlýsingin nær til búsetu- og menningarlandslags Laugarnestanga, þ.e. ásýndar staðarins og búsetumynsturs, búsetuminja, bæjarhóls, kirkjugarðs, beðasléttna, vara, annarra fornleifa og herminja og er gerð á grundvelli 18. gr. laga um menningarminjar nr. 80/2012. Friðlýsingin sameinar sem minja- heild menningarlandslag, sem varðveitir í senn fornleifar sem friðlýstar voru árin 1930 og 1987, þ.e. hinn gamla kirkjugarð (181165-230-7) og hið gamla bæjarstæði Laugarness við Sund (181165-230- 84), og aðrar aldursfriðaðar fornleifar í umhverfi sínu innan hins afmarkaða svæðis. Ef áður óþekktar minjar finnast innan hins friðlýsta svæðis falla þær undir skilmála friðlýsingar þessarar. Undanskilin friðlýsingu þessari eru mannvirki Veitna sem þegar eru til staðar á svæðinu. Einnig eru undanskilin friðlýsingunni mannvirki sem þegar eru reist og sem heimildir eru fyrir samkvæmt gildandi skipulagi til að reisa á lóðunum Laugarnestangi 60, 62, 65 og 70 ásamt því lausafé sem er á eða við umræddar lóðir. Veitum ohf. er heimilt að sinna neyðarviðgerðum, sem ekki þola neina bið, án þess að fá leyfi Minjastofnunar
- Type:
- Friðlýst minjasvæði
- Coordinates:
- 64.15°N, 21.89°W
Explore this and over 1.8 million other heritage records on Fornland, the free map of cultural heritage across northern and central Europe.