Þorpið í Flatey á Breiðafirði

Verndarsvæði í byggð in Iceland

Framtíð í FlateyMeginmarkmið: Byggð í Flatey beri vitni um ríka virðingu fyrir menningarverðmætum og lífríki. Vandað sé til viðhalds húsa, minja og landslags út frá varðveislugildi en um leið leitast við að styðja við samfélag eyjarinnar. Markmið um byggingar og mannvirkiUnnið verði að því að vernda og styrkja svipmót byggðarinnar og viðhalda byggingarlistarlegu og menningarsögulegu gildi hennar, ásamt samspili við einstaka náttúru og landslag. Stuðlað verði að verndun og viðhaldi einstakra húsa sem og þorpsins sem heildar. Leiðir að markmiði: Áherslur við skipulagsgerð:  Hlúa að fjölbreyttum bæjarrýmum og samspili við landslag, s.s. göturýmum og torgum í þorpinu og áhugaverðum sjónlínum að kennileitum á eyjunni.  Setja sveigjanlega skilmála fyrir byggðina svo nýta megi húsin sem best. Verkefni, aðgerðir, framkvæmdir:  Endurgera og viðhalda húsum, umhverfi og almenningsrýmum með þeim hætti að það styrki heildarásýnd verndarsvæðisins.  Bæta það sem fyrir er og færa hús og mannvirki nær upphaflegri gerð eftir því sem tækifæri gefst. Markmið um minjar og landslag Vernda fornminjar og landslagssérkenni sem bera vitnisburð um söguna. Tryggja vernd einstakrar náttúru, landslags og landslagsheilda. Leiðir að markmiði: Áherslur við skipulagsgerð:  Gera grein fyrir minjum og setja verndarákvæði um þær.  Skilgreina gönguleiðir og áfangastaði sem segja sögu lands, lífríkis og búsetu

Type:
Verndarsvæði í byggð

Coordinates:
65.38°N, 22.92°W

Explore this and over 1.8 million other heritage records on Fornland, the free map of cultural heritage across northern and central Europe.