Ísafjörður - Neðstikaupstaður og gamli bærinn á Eyrinni

Verndarsvæði í byggð in Iceland

Verndarsvæði í byggð - Neðstikaupstaður og gamli bærinn á Skutulsfjarðareyri 2. Rökstuðningur tillögu Ísafjörður er einn af elstu kaupstöðum landsins og þar hafa varðveist samstæðar heildir bygginga sem eru með þeim elstu á landinu öllu. Svipmót gömlu byggðarinnar á Eyrinni hefur jafnframt ómetanlegt sögulegt gildi sem vitnisburður um mótandi strauma í þéttbýlismyndun á Íslandi. Verndarsvæðið sem um ræðir tekur til „fæðingarstaða” þéttbýlisins með kaupstöðunum þremur og elstu byggðarinnar sem út frá þeim sprettur allt frá miðbiki 18. aldar. Varðveislugildi byggðarinnar er metið hátt út frá gildi byggingarlistar, menningarsögu, umhverfis, uppruna og ástands. Helstu rök fyrir varðveislugildi byggðarinnar eru eftirfarandi: ● Byggðin á Eyrinni sem hefur varðveist er dýrmætur fjársjóður fyrir Ísfirðinga og hefur einnig ótvírætt sögulegt gildi á landsvísu. ● Kaupstaðirnir þrír, þar sem húsaþyrpingar, almenningsrými og söguleiðin á milli þeirra hefur varðveist, hafa mikið ● Svipmót byggðar í bæjarrýmum skapar fallega heild og notalegt umhverfi sem endurspeglar bæi fyrri tíma. ● Á svæðinu má finna margar samstæðar heildir byggingarstíla sem segja sögu þéttbýlismyndunar á Íslandi. Mikilvægt er að vernda sérstöðu gömlu byggðarinnar á Eyrinni þannig að úr henni megi áfram lesa sögu þéttbýlismyndunar Ísafjarðar. Einnig skiptir máli að áfram verði hægt að njóta þess fallega umhverfis sem hú

Type:
Verndarsvæði í byggð

Coordinates:
66.07°N, 23.13°W

Explore this and over 1.8 million other heritage records on Fornland, the free map of cultural heritage across northern and central Europe.