Plássið. Tillaga að verndarsvæði í byggð í miðbæ Vopnafjarðarkauptúns
Verndarsvæði í byggð in Iceland
Með þessu vill Vopnafjarðarhreppur festa verndun helstu húsa miðbæjarins i sessi, styrkja heildarsvipmót þess, auk þess að tryggja menningarsögulegt gildi til framtíðar. Þannig geti miðbærinn orðið aðdráttarafl fyrir gesti og íbúa, þar sem lesa má sögu bæjarins í umhverfið, sækja verslun og helstu þjónustu. Er þetta í samræmi við tilgang og markmið tillögu um verndarsvæði í byggð. Þeir skilmálar sem lagðir eru fram hér í tillögu að verndarsvæði í byggð verða lagðir til grundvallar í deiliskipulaginu og útfærðir nánar, s.s. með skilmálum um vernd, lóðaafmörkunum, byggingareitum og gönguleiðum. Öll vinna við verndarsvæðið í byggð hefur miðast við að samhliða þeirri vinnu verði unnin tillaga að deiliskipulagi fyrir sama svæði með sömu afmörkun. Samhliða auglýsingu á þessari tillögu er tillaga að deiliskipulagi auglýst svo allir sem vilja geta komið ábendingum og athugasemdum á framfæri og þannig haft áhrif á bæði tillögu að verndarsvæði og tillögu að deiliskiplagi. Er þetta gert í viðleitni til að tryggja hagsmuni allra og að hugmyndir íbúa verði endurspeglaðar í báðum tillögum og auka líkur á að almenn sátt náist um þær. Auk þessarar tillögu að verndarsvæði í byggð eru aðrar forsendur deiliskipulagsins hugmyndir um lifandi miðsvæði. Miðsvæði hvers byggðarkjarna gegna mikilvægu hlutverki gagnvart íbúum og gestum (þ.á.m. ferðamönnum). Til að svæðið geti uppfyllt það hlutverk þarf a
- Type:
- Verndarsvæði í byggð
- Coordinates:
- 65.75°N, 14.83°W
Explore this and over 1.8 million other heritage records on Fornland, the free map of cultural heritage across northern and central Europe.