Garðahverfi á Álftanesi

Verndarsvæði í byggð in Iceland

Hjáleigubyggð líkt og Garðahverfi státar af hefur mikið menningarsögulegt gildi sem hefur sterkar vísanir í sögu þjóðarinnar og lifnaðarhætti fyrri tíma. Samkvæmt fornleifaskráningu eru mjög margar og merkilegar minjar um búsetu að finna í Garðahverfi. Þær tengjast atvinnuháttum, s.s. sjósókn og búskap, samgöngum og menningarlegum þáttum á borð við trúarlíf, skólahald og jafnvel réttarsögu. Garðakirkja er merkilegur kirkjustaður með langa sögu, sem teygir anga sína víða, s.s. með frumkvöðlastarfi í kartöflurækt. Kirkjustaðurinn hefur jafnframt verið miðstöð mannlífs og menntunar. Saga skólastarfs er einnig merkileg á svæðinu með minjum um Hausastaðaskóla, fyrsta heimavistarskólann. Eins og áður hefur komið fram er sjaldséð að hjáleigubyggð hafi varðveist jafn vel og í Garðahverfi og ekkert dæmi um slíkt á suðvesturhorninu. Einnig hafa hvergi minjar varðveist í jafn ríku mæli, því víðast hvar hafa bæir byggst upp við verstöðvar og uppbygging þeirra og hafnarmannvirkja meðfram ströndinni hafa orðið þess valdandi að fáar minjar eru enn varðveittar. Auk alls þessa hefur byggðin verið girt af með görðum, bæði túngörðum og varnargörðum meðfram sjónum. Í fornleifaskrá kemur fram að mannvirki af þessu tagi hafi tíðkast frá fornu fari. Elstu minjar á svæðinu eru frá landnámi og líklegt er talið að hér hafi staðið vísir af þorpi á síðmiðöldum. Óhætt sé að segja að menningarsögulegt lands

Type:
Verndarsvæði í byggð

Coordinates:
64.09°N, 22.00°W

Explore this and over 1.8 million other heritage records on Fornland, the free map of cultural heritage across northern and central Europe.