Vesturhluti Víkur í Mýrdal
Verndarsvæði í byggð in Iceland
Samkvæmt Aðalskipulagi Mýrdalshrepps liggur megin styrkleiki hreppsins í atvinnumálum í landbúnaði og ferðaþjónustu og skal lögð áhersla á þróun og aðbúnað þessara atvinnugreina. Gert er ráð fyrir að sköpun nýrra starfa á næstu árum verði fyrst og fremst í ferðaþjónustu. Eitt af markmiðum aðalskipulagsins er að stuðla að náttúru- og menningartengdri ferðaþjónustu og skulu í þeim tilgangi áhugaverð svæði kortlögð m.t.t. nýtingar fyrir ferðaþjónustu, aðgengis, þolmarka og þeirrar aðstöðu og innviða sem þarf að skapa (Aðalskipulag Mýrdalshrepps 2012-2028; VSÓ, 2012). Í gamalli og sögulegri byggð felast verðmæti fyrir núlifandi kynslóðir og kynslóðir framtíðarinnar, og einnig fyrir ferðaþjónustu. Hluti af tillögugerð að verndarsvæði í byggð felst í kortlagningu byggðarinnar. Með skilgreiningu verndarsvæðis í byggð er mörkuð stefna um verndun, viðhald og þróun elsta hluta Víkurþorps sem getur þjónað sem aðdráttarafl fyrir ferðamenn ef vel er að verki staðið. Stefna sveitarfélagsins hefur verið að skapa svigrúm fyrir uppbyggingu þjónustu í þéttbýlinu og í Aðalskipulagi Mýrdalshrepps er vesturhluti Víkur skilgreindur sem blandað athafna-, íbúða- og þjónustusvæði. Í aðalskipulaginu er haft að leiðarljósi að öll uppbygging íbúðarsvæða og megin uppbygging atvinnuhúsnæðis skuli vera í Vík, meðal annars til þess að styrkja núverandi byggð. Við þróun á þéttbýlinu skal taka mið af byggingars
- Type:
- Verndarsvæði í byggð
- Coordinates:
- 63.42°N, 19.01°W
Explore this and over 1.8 million other heritage records on Fornland, the free map of cultural heritage across northern and central Europe.