Gamli bærinn á Sauðárkróki

Verndarsvæði í byggð in Iceland

Gamli bærinn á Sauðárkróki er eins og nafnið gefur til kynna elsti hluti byggðar í bænum. Þar standa elstu húsin sem geyma merkilega merkilega sögu um uppbyggingu og þróun bæjarins. Sauðárkrókur varð löggiltur verslunarstaður árið 1858 og hófst þá lausaverslun úti fyrir staðnum. Árið 1871 settist fyrsti íbúinn, Árni Árnason klénsmiður, þar að og stundaði veitingasölu. Tveimur árum síðar reis fyrsta verslunin, stofnuð af Halli Ásgrímssyni Grænlandsfara. Árið 1875 seldi hann Ludvig Popp kaupmanni verslunina og starfaði hún um áratuga skeið undir nafni Poppsverslunar. Ludvig Popp má kalla föður Sauðárkróks. Hann kom að, eða stóð fyrir fjölmörgum framfaramálum í kauptúninu unga og skipulagði bæinn sem var í hraðri uppbyggingu. Svo margar þóttu verslanir í bænum um aldamótin 1900 að gárungar kölluðu plássið Kaupmannahöfn. Íbúum fjölgaði að sama skapi og voru þá komnir yfir 400. Árið 1906 kom fyrsti vélbáturinn til Sauðárkróks og árið 1916 var lokið smíði bryggju. Skömmu fyrir síðari heimstyrjöld var gerður hafnargarður og útgerðinni óx smám saman fiskur um hrygg en verslun og þjónusta við sveitirnar var samt sem áður aðal atvinnuvegurinn. Árið 1940 bjuggu 964 íbúar á Sauðárkróki. Árið 1970 voru þeir 1.596 en 1. janúar 2018 bjuggu 2.574 íbúar á Sauðárkróki. Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykkti á fundi 17. október 2018 að leggja fram tillögu til mennta- og menningarmá

Type:
Verndarsvæði í byggð

Coordinates:
65.75°N, 19.65°W

Explore this and over 1.8 million other heritage records on Fornland, the free map of cultural heritage across northern and central Europe.