Plássið og Sandurinn á Hofsósi

Verndarsvæði í byggð in Iceland

Í deiliskipulaginu, Deiliskipulag fyrir Sandinn, Plássið, Brekkuna og Bakkann frá 1999, segir að eitt helsta markmið deiliskipulagsins sé „að vernda svipmót og sérkenni hinna 4 sjálfstæðu bæjarhluta, húsgerðir, bæjarmynstur og helstu landslagssérkenni á grundvelli bæjar- og húsakönnunar sem gerð var fyrir þessa bæjarhluta.“3 Eins og komið hefur fram er hér um að ræða elstu byggðarinar á Hofsósi. Svæðið býr yfir merkilegri sögu lítils þorps sem hafði stórt hlutverk í verslunarsögu Skagafjarðar og jafnframt er hér að finna elstu húsin á Hofsósi. Í húsakönnun sinni frá árinu 1999 kemst Árni Ragnarsson að þeirri niðurstöðu að skilningur íbúa á Hofsósi sé sá „að Plássið og Sandurinn séu svo vel varðveittar bæjarmyndir að um menningarminjar sé að ræða og því beri að tryggja þeim vernd ásamt byggð á brekkunum.“ Sömu niðurstöðu má draga af íbúafundum og samtölum við íbúa Hofsóss í tengslum við fyrirhugað verndarsvæði í byggð nú. Það er því sameiginlegur skilningur og mat heimamanna, bæði íbúa og sveitarstjórnar, að þennan mikilvæga bæjarhluta beri að vernda til framtíðar. Í kjölfar auglýsingar Minjastofnunar eftir umsóknum um styrki til að undirbúa tillögur að verndarsvæði í byggð, var ákveðið á fundi Byggðaráðs þann 17. ágúst 2016 að sækja um styrk. Minjastofnun samþykkti styrkumsóknina þann 14. september sama ár. Vinna við verkefnið hófst af fullum krafti um miðjan ágústmánuð 2017, e

Type:
Verndarsvæði í byggð

Coordinates:
65.90°N, 19.42°W

Explore this and over 1.8 million other heritage records on Fornland, the free map of cultural heritage across northern and central Europe.