Djúpivogur - verndarsvæðið við voginn

Verndarsvæði í byggð in Iceland

Eins og fyrr segir markast verndarsvæðið af allbreiðri skák meðfram strönd Djúpavogs og götunni Búlandi. Heildarflatarmál þess er 7,5 hektarar. Svæðið nær til meginkjarna elstu byggðar í kauptúninu, sem jafnframt er meðal elstu verslunarstaða landsins, þar sem föst verslun og búseta hefur haldist óslitið frá ofanverðri 16. öld. Smábátahöfnin og gömlu verslunarhúsin með hinn tignarlega Búlandstind í baksýn. (Ljósm. Andrés Skúlason, 2015). Sá menningarsögulegi arfur, sem varðveist hefur í gömlum húsakosti og ríkulegri flóru fornleifa á svæðinu, ásamt lítt raskaðri fjöru og helstu kennileitum í nánasta umhverfi, felur í sér einstæð tækifæri til verndar og uppbyggingar. Með varðveislu og endurgerð þriggja elstu húsanna við vestanverðan voginn, þ.e. Löngubúðar, Faktorshúss og Geysis, að viðbættri Framtíð og Djúpavogskirkju eldri, hefur verið stigið þýðingarmikið skref til verndar þessari arfleifð og gamalgrónu svipmóti byggðarinnar. Heildstæð stefnumótun um frekari verndun húsa og annarra menningarsögulegra minja, svo og ígrunduð heildarsýn varðandi skipulag svæðisins og byggingu nýrra mannvirkja í anda eldri byggðar, eru forsendur þess að vel takist til við að varðveita þá ásýnd og uppbyggingu svæðisins til frambúðar. Í 5. – 7. kafla er gerð nánari grein fyrir sérstöðu og varðveislugildi svæðisins, helstu skilmálum um verndun þess, skipulag og framtíðaruppbyggingu. Verndarsvæðið vi

Type:
Verndarsvæði í byggð

Coordinates:
64.66°N, 14.28°W

Explore this and over 1.8 million other heritage records on Fornland, the free map of cultural heritage across northern and central Europe.