Borðeyrartangi - vestari hluti Borðeyrar
Verndarsvæði í byggð in Iceland
2. Greinargerð með tillögu. Inngangur. Markmið þessarar greinargerðar er að kynna meginröksemdir fyrir þeirri tillögu sveitarstjórnar Húnaþings vestra að sá hluti þorpsins Borðeyrar við Hrútafjörð sem stendur á Borðeyrartanga og gekk undir viðurnefninu „plássið“ verði gerður að verndarsvæði í byggð og njóti þ.a.l. verndar samkvæmt lögum nr. 87/2015 og reglugerð nr. 575/2016. Samantektin er unnin af dr. Vilhelm Vilhelmssyni sagnfræðingi fyrir hönd sveitarstjórnar Húnaþings vestra. Hún er unnin samkvæmt leiðbeiningum frá Minjastofnun Íslands um frágang á tillögu og greinargerð um verndarsvæði í byggð. Samantektin byggir á fornleifaskráningu sem unnin var fyrir Bæjarhrepp árið 2008 af Margréti Hallmundsdóttur og Caroline Paulsen og og rannsóknarvinnu hans á sögu Borðeyrar, sem enn hefur ekki verið skrifuð með heildstæðum hætti. Hér er því um umtalsverða frumheimildarannsókn að ræða. Greinargerðinni er skipt í kafla eftir því sem hér segir: Fyrst er greint frá staðfræði svæðisins, landfræðilegri legu og sérkennum (kafli 3.1). Þá er ítarlegt yfirlit yfir sögu Borðeyrar frá fyrstu tíð Íslandsbyggðar og fram á byrjun 21. aldar (kafli 3.2). Áhersla er lögð á verslunarsögu staðarins enda er það helsta sérkenni sögu Borðeyrar og grundvöllur þess að þéttbýli myndaðist þar upp úr miðri 19. öld. Því næst er fjallað um byggingasögu á fyrirhuguðu verndarsvæði á Borðeyrartanga þar sem farið er
- Type:
- Verndarsvæði í byggð
- Coordinates:
- 65.21°N, 21.09°W
Explore this and over 1.8 million other heritage records on Fornland, the free map of cultural heritage across northern and central Europe.