Framdalur Skorradals

Verndarsvæði í byggð in Iceland

Framdalurinn, sem er innsti hluti Skorradals, er falin perla úr alfaraleið þar sem varðveisla menningarlandslags frá 19. og 20. öld er einstaklega góð. Saga framdalsins er löng og hana má m.a. lesa úr fjölda fornminja á svæðinu. Þessa sögu má lesa úr svipmóti staðarins, heimatúnum bæjanna og samhengi þeirra við umhverfið sem birtist m.a. í fornum þjóðleiðum sem tengja framdalinn við umheiminn. Í framdalnum standa enn bæjarhús frá fyrri hluta 20. aldar sem eru góð dæmi fyrir þá kynslóð húsagerðar í sveitum sem reis á eftir torfbæjunum. Kotin og heimatúnin í framdalnum eru dæmigerð fyrir búskapar- og híbýlahætti til sveita á þeim tíma og saman má segja að framdalurinn myndi ákveðna heild, með Fitjakirkju sem miðju. Víða erlendis eru dæmi um hús og svæði sem hafa mikið aðdráttarafl vegna staðarandans og eru eftirsótt sem dvalarstaðir, sér í lagi ef vandað er til endurgerðarinnar og umhverfið er hlýlegt og býður upp á afþreyingarmöguleika, eins og framdalurinn getur boðið. Í framdalnum er tækifæri til að gera sögu svæðisins skil með varðveislu og endurgerð gamalla húsa og miðlun á sögu byggðarinnar og búháttaþróun, allt frá landnámi. Með því að gera heimatúnin í framdalnum að Verndarsvæði í byggð er mótuð stefna og skilmálar um verndun staðarins til framtíðar svo að dýrmætar minjar tapist ekki. Jafnframt gefur verndunin staðnum aukið vægi sem einstakur útivistarstaður í friðsælli n

Type:
Verndarsvæði í byggð

Coordinates:
64.50°N, 21.37°W

Explore this and over 1.8 million other heritage records on Fornland, the free map of cultural heritage across northern and central Europe.