Útgarður - Suðurnesjabær
Verndarsvæði í byggð in Iceland
Útgarður, Suðurnesjabær. Verndarsvæði í byggð. Húsin á reitnum mynda einstakt 19. aldar byggðarmynstur og heildstætt menningar- og búsetulandslag. Byggðin myndaðist við og út frá Skagabrautinni og gömlu stakstæðu útgerðarbýlin eru dreifð um túnin í mismikilli fjarlægð frá veginum. Þau standa hvert um sig stök í landslaginu, í fjarlægð frá nágrannahúsum og eru því áberandi í umhverfi sínu. Þar er einnig að finna merkar fornleifar s.s., hlaðna garða, lága bæjarhóla og varir og lendingar. Þessi sérkenni og rík saga gerir þetta búsetulandslag einstakt. Húsin á reitnum tilheyra Skagabraut, Akurhúsavegi og Útskálavegi. Byggingarár húsanna nær yfir langt tímabil eða frá 1861 – 1972. Sex hús á reitnum voru byggð fyrir árið 1913 og u.þ.b. helmingur húsanna á reitnum var byggður á 3. og 4. áratug 20. aldar. Þau eru, með fáum undantekningum, einnar hæðar timburhús. Þarna má finna íbúðarhús, atvinnuhúsnæði og kirkjustað. Íbúðarhúsin eru látlaus og dæmigerð fyrir sinn tíma, en hafa umhverfisgildi, ýmist sem hluti götumyndar eða búsetulandslags svæðisins. Sum hafa einnig varðveislugildi vegna aldurs eða menningarsögu. Við strandlengjuna eru nokkur hús sem hafa verið notuð fyrir atvinnustarfsemi. Þessar byggingar eru ólíkar hvað varðar aldur og ástand en hafa varðveislugildi vegna menningar- og atvinnusögu Garðs. Útskálar, sem eru innan reitsins, voru eitt mesta höfuðból Suðurnesja, kirkjusta
- Type:
- Verndarsvæði í byggð
- Coordinates:
- 64.08°N, 22.68°W
Explore this and over 1.8 million other heritage records on Fornland, the free map of cultural heritage across northern and central Europe.