Þórkötlustaðahverfi í Grindavík
Verndarsvæði í byggð in Iceland
TILLAGA AÐ VERNDARSVÆÐI Í BYGGÐ 1 INNGANGUR Lög um verndarsvæði í byggð nr. 87/2015 sem tóku gildi um mitt árið 2015 gefa sveitarfélögum tækifæri á að sækja um styrk til Minjastofnunar Íslands til að vinna tillögu að verndarsvæði. Í ágúst 2016 ákvað Grindavíkurbær að sækja um styrk til að vinna tillögu að verndaráætlun fyrir Þórkötlustaðahverfi í Grindavík. Á haustmánuðum sama ár veitti Minjastofnun Íslands sveitarfélaginu styrk til verksins. Í kjölfarið óskaði Grindavíkurbær eftir því að EFLA verkfræðistofa verkstýrði verkefninu fyrir hönd bæjarins og ritstýrði skýrslugerð. Grindavíkurbær fékk Elínu Ósk Hreiðarsdóttur hjá Fornleifastofnun Íslands og Hjörleif Stefánsson arkitekt til að vinna saman að gerð húsakönnunar og fornleifaskráningar. Þessir aðilar unnu tillögu að verndaráætlun í sameiningu. Vinnan við verkefnið hófst sumarið 2017 á fornleifaskráningu ásamt húsakönnun. Skýrsla um svæðisins metið í samræmi við leiðbeiningar frá Minjastofnun Íslands. Markmið laganna um verndarsvæði í byggð er að stuðla að verndun sögulegrar byggðar. Í lögunum og reglugerð nr. 575/2016 er kveðið nánar á um hvað felst í tillögu að verndarsvæði í byggð. Verndarsvæðið er byggð sem nýtur sérstakrar verndar samkvæmt ákvörðun ráðherra. „Sveitarstjórnir skulu að loknum sveitarstjórnarkosningum meta hvort innan sveitarfélagsins sé byggð sem hafi slíkt gildi hvað varðveislu svipmóts og menningarsögu
- Type:
- Verndarsvæði í byggð
- Coordinates:
- 63.84°N, 22.39°W
Explore this and over 1.8 million other heritage records on Fornland, the free map of cultural heritage across northern and central Europe.