Þormóðseyri Siglufirði
Verndarsvæði í byggð in Iceland
Bæjarstjórn Fjallabyggðar leggur til að svæði á Siglufirði sem afmarkast af Aðalgötu til suðurs, Norðurgötu til austurs, Eyrargötu til suðurs og Grundargötu til vesturs, verði gert að „verndarsvæði í Samkvæmt lögum þessum er lögð fram tillaga að varðveislu afmarkaðs svæðis innan þéttbýlis og skilgreindir þeir þættir í svipmóti byggðarinnar sem talið er mikilvægt að varðveita og settir skilmálar sem tryggja verndun þess. Reiturinn sem liggur til grundvallar tillögu um verndarsvæði á Þormóðseyri er gott sýnishorn af þeirri byggð sem þróaðist snemma á 20. öld á grundvelli reitaskipulags sr. Bjarna Þorsteinssonar frá 1918. Svæðið hefur að geyma mikla sögu um upphaf byggðar og skipulags á Siglufirði. Næst elsta hús bæjarins Staðarandi (e. genius loci) er tilfinning sem við upplifum í umhverfi okkar er við ferðumst um götur og hverfi borga og bæja. Staðarandi samanstendur af mörgum þáttum í umhverfinu s.s. hlutföllum og hæðum húsa, áferð, litum, formum, gróðri o.fl. og endurspeglar þann tíma sem umhverfið hefur mótast í. Heildin skiptir öllu máli í þessu samhengi því það er heildin sem skapar þessa tilfinningu fyrir anda staðar. Í verkefni þessu sem liggur til grundvallar verndarsvæðis í byggð, verður leitast við að leggja mat á svipmót heildarinnar og gera tillögu að verndum hennar. Skýrsla þessi skiptist í tvo hluta; fyrri hluti fjallar um tillöguna sem lögð er fram á grundvelli gr
- Type:
- Verndarsvæði í byggð
- Coordinates:
- 66.15°N, 18.91°W
Explore this and over 1.8 million other heritage records on Fornland, the free map of cultural heritage across northern and central Europe.