Krókskotstún - Landakotstún í Sandgerði
Verndarsvæði í byggð in Iceland
Krókskotstún - Landakotstún, Suðurnesjabær. Verndarsvæði í byggð. Menningarsögulegt gildi Byggðin og umhverfið á svæðinu er minnisvarði um mikilvægt uppbyggingarskeið í Sandgerði, atvinnu- og umbreytingarsögu í íslensku samfélagi, á fyrri hluta 20. aldar. Lesa má í búskapar- og atvinnusögu á svæðinu, þar sem minjar og fornleifar ásamt eldri býlum og útihúsum geyma sögu búskaparhátta í sjávarþorpi. Talsvert er um dæmigerð einnar hæða látlaus íbúðarhús frá þriðja til fimmta áratug 20. aldar. Elsta hús í þéttbýliskjarnanum, Efra Sandgerði er á svæðinu, það er frá árinu 1883. Þar er einnig að finna reisulegar byggingar Samkomuhúss og verslunar- og skrifstofuhús Miðness hf og Garðs hf, ásamt með fyrsta sjúkraskýlinu sem Rauði krossinn byggði hér á landi að norskri fyrirmynd. Umhverfisgildi Svæðið myndar heild og götumyndir með götum og byggingum ásamt þyrpingum umhverfis túnin. Túnin eru skemmtileg miðja í næsta nágrenni hafnar, miðsvæðis, tjarna og býla. Aðgengi að merkilegum fornminjum er á svæðinu. Miðlungs til hátt umhverfisgildi. Krókskotstún - Landakotstún, Suðurnesjabær. Verndarsvæði í byggð. Sandgerðistjarnir Samkomuhúsið við Norðurgötu 18 var byggt árið 1946 og hefur þjónað ýmsum hlutverkum t.d. verið félagsheimili, fangelsi, dansskóli, íþróttahús og kvikmyndahús. Það hefur sterka stöðu í bæjarmyndinni og með staðsetningu þess myndast eins konar torg við enda Brekkustígs. K
- Type:
- Verndarsvæði í byggð
- Coordinates:
- 64.04°N, 22.71°W
Explore this and over 1.8 million other heritage records on Fornland, the free map of cultural heritage across northern and central Europe.